Bloggfærslur mánaðarins, nóvember 2009

Er Árni asni?

"Árni sagði fjölmörg rök hníga af því að veita sjómönnum skattaafslátt. Þeir hafi minni aðgang en aðrir að heilbrigðiskerfinu, vegakerfinu, menningarlífinu sem er kostað af skattfé. Þá séu ekki taldar með fjarvistir frá fjölskyldunni."

Minni aðgang að heilbrigðiskerfinu?? Hvílík della, veit ekki betur en það sé send þyrla eftir þeim ef þeir slasast eða veikjast heiftarlega.

Vegakerfið, algjör firra, þeir og þeirra fjölskyldur nota það ekkert minna enn aðrir.

Menningarlífið, ef þeir hafa áhuga geta þeir notið þess þá 100 daga sem þeir eru í frí á ári.

Fjarvistir frá fjölskyldu, margar aðrar stéttir þurfa að vera mun meira frá fjölskyldu sinni heldur enn sjómenn í dag og fá engann afslátt.

Hlunnindi og sponslur eins og hann segir (Fjarvistarálag) þetta er greitt af vinnuveitenda og er samningur á milli þeirra og launþega, enn ekki greitt úr vasa samborgaranna.

Löngu tímabær ákvörðun.

 

 

 

 


mbl.is Afþakka boð ráðherra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nýju útrásarvíkingarnir!

Það er greinilegt á nafngiftinni ARION BANK að það er stefnt á fullri ferð aftur í útrásarsukkið.

En sama er mér, ekki minn banki. Guð hjálpi ykkur hinum.

Geiri

 


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband