Bloggfærslur mánaðarins, desember 2008

Mokað yfir skítinn

Hér er greynilega verið að reyna að moka yfir skítinn og slá ryki í augu lesenda með því að fara út í allt aðra sálma. Reynið frekar að standa ykkur og ekki láta þessa fýra vaða yfir ykkur.

Áfram frjáls blaðamennska!


mbl.is Breyttur leiðari DV
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Frábært.

Ég held að skynsemin hafi fengið að ráða þarna, loksins! Nú er Birna næst.
mbl.is KPMG óskar eftir lausn frá verkefni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það er ekkert NEXT hjá mér!

Next nei takk, ekki með þetta lið við stjórnvölinn.
mbl.is Next vildi þau eða ekkert
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Melkorka ehf

Þetta er frábært. Kaupin misfórust einhverstaðar í kerfinu og Birna er laus allra mála!

Nei aldeilis ekki, hún ætlaði sér að misnota aðstöðu sína til að kaupa hlutabréf og fá til þess svikalán. Ekki nóg með það, hún ætlaði að fela gjörninginn í einkahlutafélagi, Melkorku ehf.

Þetta sýnir ótvírætt að heilindi þessara manneskju eru ekki upp á marga fiska. Á maður að treysta henni fyrir rekstri bankanns. Hvað gerir hún næst? Nei burt með hana STRAX.


mbl.is FME aðhefst ekki vegna viðskipta Birnu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nei!

Skattaafsláttur þýðir minni tekjur ríkissjóðs, sem aftur bitnar á öllum almenningi í landinu. Þá kæmi til skerðingar atvinnuleysis- og örorkubóta, heilbrigðiskerfið fengi minna og svo mætti lengi telja. Þetta fólk lét plata sig og við eigum ekki að bæta fyrir það, nógur er skaðinn af bankahruninu samt. 
mbl.is Þeir sem töpuðu fái skattaafslátt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband